Efni — tækniblöðWeber flotefni
Flotefnin sem við leggjum — með tæknilegum upplýsingum fyrir hvert efni. Smelltu á efni til að skoða tæknigögnin eða tengdu beint í þau úr tilboði.
Yfirflot
Sjálfjafnandi flot sem gefur slétt, tilbúið yfirborð undir gólfefniSjálfjafnandi fínflot fyrir innanhúss gólf. Gefur slétt, sterkt yfirborð sem er tilbúið undir dúk, parket, flísar eða málningu — engin frekari yfirborðsmeðhöndlun.
Hraðharðnandi fínflot — sama slétta yfirborð og 4150 en gönguhæft fyrr og fljótari yfirlögn. Fyrir verk þar sem tíminn er naumur og krafist er mikils styrks.
Trefjastyrkt sjálfjafnandi flot með auknum styrk og togþoli. Gerir minni kröfur til undirlagsins og hentar t.d. sérstaklega vel yfir trégólf.
Iðnaðargólf / Sjónflotun
Slitsterk flot fyrir mikið álagGrunnflot
Uppbygging og jöfnun undirlags fyrir þykkari lögDælanlegt, hraðþornandi grunnflot fyrir miklar afréttingar í einni aðgerð. Hentar vel þar sem þykktir eru miklar og til að móta vatnshalla, t.d. undir flísar á baðherbergjum.
Trefjastyrkt, dælanlegt grunnflot fyrir þykk lög (15–80 mm) þar sem ekki er krafist stutts þornunartíma. Hentar vel í fljótandi gólf — þægindagólf, hljóðgólf og loftræst gólf.
Hraðharðnandi, dælanlegt grunnflot fyrir þykk lög (20–80 mm) þar sem stytta þarf þornunartímann. Lág basavirkni og lítil losun.